Íþróttavöruverslunin Intersport mun hætta starfsemi í sumar. Intersport rekur þrjár verslanir, á Selfossi, Akureyri og í Reykjavík.
Starfsfólki Intersport var tikynnt um þetta í síðustu viku, samkvæmt upplýsingum Kjarnans sem greindi fyrst frá málinu. Eignarhaldsfélagið Festi, sem sérhæfir sig í rekstri verslunarfyrirtækja, er eigandi Intersport og hefur rekið stórverslun undir merkinu á Bíldshöfða í 19 ár.
Jón Björnsson, forstjóri Festis, staðfestir það við Kjarnann að versluninni verði lokað í sumar og að lagersala sé þegar hafin. Önnur verslun, sem þó verði ekki íþróttavöruverslun, muni opna á þeim stað sem Intersport hefur verið. „Núverandi starfsfólki Intersport hefur verið boðið að vinna fyrir önnur fyrirtæki Festi, hafi þau áhuga á því,“ segir Jón.