Íris Anna Steinarrsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Bláskógaskóla Laugarvatni. Hún tekur við starfinu af Elfu Birkisdóttur, sem heldur nú á vit nýrra ævintýra.
Íris Anna hefur starfað sem kennari og aðstoðarskólastjóri um árabil. Hún lauk námi frá Kennaraháskóla Íslands með BS próf í íþróttafræðum og B.Ed. í grunnskólafræðum og hefur lokið framhaldsnámi í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu á stjórnunarfræði menntastofnana, auk þess sem hún hefur sótt fjölmörg starfstengd námskeið og lagt stund á sálfræðinám.