Íshellan í Grímsvötnum hefur nú sigið um tæpa 5 metra. Vatnamælingamenn frá Veðurstofunni voru að störfum á bökkum Gígjukvíslar í dag til að huga að mælitækjum.
Rétt fyrir hádegi mældist rennsli árinnar um 240 m3/sek og hefur haldist óbreytt fram eftir degi. Miðað við mælingar á vatnsstöðunni í Grímsvötnum gæti hámarksrennsli hlaupsins orðið um 5.000 m3/sek þó ekkert sé hægt að fullyrða á þessu stigi að það verði raunin.
Hlaupórói mælist á skjálftamælum, sem gefur til kynna að vatn er farið að streyma undir jöklinum. Rafleiðni hefur hinsvegar vaxið mjög hægt í ánni og ekkert gas mælist.
Mælingar á vegum Jarðvísindastofnunar Háskólans benda til þess að um 0.1 km3 vatns hafi þegar farið úr vötnunum, sem er um 10% af því vatni sem var í Grímsvötnum áður en íshellan tók að síga. Ekki er þó sjálfgefið að vötnin tæmist, að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni.