Umhverfisverðlaun Ölfuss árið 2014 hlýtur Icelandic Water Holding, vatnsverksmiðjan á Hlíðarenda í Ölfusi, fékk umhverfisverðlaun Sveitarfélagsins Ölfuss 2014 en þau voru afhent á Reykjum á sumardaginn fyrsta.
Verðlaunin eru veitt þeim sem sýnt hefur einstakt framtak á sviði umhverfismála en við valið er horft til þeirra fyrirtækja, stofnana eða einstaklinga innan sveitarfélagsins sem láta sig umhverfismál varða, hafa mótað sér umhverfisstefnu eða á annan hátt verið til fyrirmyndar hvað varðar umhverfismál.
Tilgangur umhverfisverðlauna Ölfuss er að stuðla að aukinni umhverfisvitund íbúa og fyrirtækja og hvetja fólk til að láta sig umhverfismál varða.
Í umsögn segir að Icelandic Water Holding uppfylli með prýði öll þau viðmið og kröfur sem settar voru fram við valið og gera fyrirtæki verðug þess að hljóta umhverfisverðlaun Ölfuss.
Stefna fyrirtækisins er að kolefnisjafna útblástur sem verður til við framleiðsluna. Af fremsta megni er leitast við að fylgja stöðlum í umhverfisvænum starfsháttum og fylgja grænum gildum.
Icelandic Water Holding hafa verið í samstarfi við Carbon Neutral frá 2006 og voru þá fyrsta drykkjarvörufyrirtækið til fá viðeigandi vottun á öll ferli í rekstri félagsins. Fyrirtækið hefur fjárfest í umhverfisvænum verkefnum sem ætlað er að leysa af hólmi framleiðslu sem annars hefði skilað kolefnisútblæstri út í andrúmsloftið. Má þar nefna metanframleiðslu og nýtingu bæði lífræns úrgangs og vindmyllur sem orkugjafa.
Allar umbúðir og afurðir fyrirtækisins eru 100% endurvinnanlegar og leitast er við að skipta við framleiðendur sem hafa umhverfisvottanir og nota hátt hlutfall endurunninna hráefna.
Verðlaunagripurinn er unninn af handverkskonunni Dagnýju Magnúsdóttur í Þorlákshöfn og er innblásinn af umhverfinu við ströndina og vatninu.