Jákvæður rekstur á Árborg

Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar var tekinn til fyrri umræðu á síðasta fundi bæjarstjórnar. Afkoma samstæðu Sveitarfélagsins Árborgar er jákvæð annað árið í röð og reyndist vera hagnaður um 65 milljónir fyrir skatta.

Skuldahlutfall lækkar úr 203% í 173% en skuldir eru enn háar og verðbætur síðasta árs voru mun hærri en gert var ráð fyrir í áætlun. Tekjur voru 5.400 milljónir og rekstrargjöld 4.241 milljónir króna .

Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1.159 milljónir króna af samstæðu og hækkar um 34% úr 862 milljónir króna milli ára. EBITDA hlufall fer í 22% af tekjum sem er vel yfir viðmiðunarmörkum.

Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir hefur hækkað úr 696 milljónum eða um 67% frá 2009. Greiðslugeta sveitarfélagsins hefur nú gjörbreyst á tveimur árum. Skuldir sveitarfélagsins eru nú 7,9X EBITDA eða liðlega áttfaldur rekstrarhagnaður en var 13X EBITDA eða þrettánfaldur rekstrarhagnaður fyrir aðeins tveimur árum. Er ljóst að nú hefur skuldasöfnun verið stöðvuð og rekstur sveitarfélagisns orðinn sjálfbær að því er fram kemur í frétt á heimasíðu bæjarins.

Fjármagnsgjöld vega þungt og eru 717 milljónir króna hjá samstæðu, engu að síður lækka skuldir að krónutölu en afborganir lána námu 964 milljónum á móti lántöku upp á 532 milljónir króna. Að frádregnum fjármagnsgjöldum og afskriftum er niðurstaðan jákvæð um 64.7 milljónir króna fyrir skatta og 35 milljónir króna eftir skatta. Áfram verður leitast við að vinna að hagræðingu í rekstri og lækkun skulda eins og kostur er.

Fyrri greinHáskólalestin á Klaustri um helgina
Næsta greinBjörgvin G.: Merkur áfangi í fangelsismálum