Jóhanna Ýr leiðir B-listann í Hveragerði

Hluti frambjóðenda Framsóknar í Hveragerði á kynningarfundi listans í dag. Ljósmynd/Aðsend

Framsókn í Hveragerði kynnti framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar á fjölmennum fundi á Gróðurhúsinu í Hveragerði síðdegis í dag.

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri Framsóknarflokksins og bæjarfulltrúi í Hveragerði, leiðir listann en í öðru sæti er Halldór Benjamín Hreinsson, framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Þjóðskrá Íslands.

Framsókn bauð fram fyrir fjórum árum undir merkjum Frjálsra með framsókn og fékk þá einn bæjarfulltrúa kjörinn. Það var Garðar R. Árnason en hann fór í leyfi á miðju kjörtímabili og Jóhanna Ýr tók þá sæti í bæjarstjórn. Garðar skipar heiðurssæti listans.

Listi Framsóknar í Hveragerði er þannig skipaður:
1. Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri og bæjarfulltrúi
2. Halldór Benjamín Hreinsson, framkvæmdastjóri
3. Andri Helgason, sjúkraþjálfari og eigandi Tinds sjúkraþjálfun
4. Lóreley Sigurjónsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Fitnessbilsins
5. Thelma Rún Runólfsdóttir, háskólanemi og leiðbeinandi á leikskóla
6. Snorri Þorvaldsson, lögreglumaður
7. Kolbrún Edda Jensen Björnsdóttir, leiðbeinandi á leikskóla
8. Arnar Ingi Ingólfsson, byggingarfræðingur og húsasmíðameistari
9. Hanna Einarsdóttir, háskólanemi og söngkona
10. Halldór Karl Þórsson, körfuknattleiksþjálfari
11. Brynja Sif Sigurjónsdóttir, hjúkrunarfræðinemi
12. Örlygur Atli Guðmundsson, tónlistarkennari og kórstjóri
13. Magnea Ásdís Árnadóttir, eftirlaunaþegi
14. Garðar R. Árnason, grunnskólakennari og fyrrv. bæjarfulltrúi

Fyrri greinListi Framsóknar og annarra framfarasinna samþykktur
Næsta greinRutkauskas rótaði upp tröllatvennu