Í gær voru jólaljósin tendruð í Rangárþingi ytra á jólatrénu við árbakkann á Hellu. Vindurinn gerði smá hlé á meðan kveikt var á ljósunum en hinsvegar var ekkert lát á snjókomunni.
Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra fékk það hlutverk að tendra ljósin á jólatrénu og voru jólasveinar til aðstoðar.
Eftir að ljósin höfðu verið tendruð var farið í anddyri íþróttahússins þar sem beið viðstaddra heitt kakó og smákökur í boði Hótel Lækjar og Kökuvals.
Tónlistaratriði voru flutt frá Tónlistarskóla Rangæinga og dansað var í kringum jólatréð en þeir Kristinn Ingi og Gunnar Bjarki léku undir.
Foreldrafélög Leikskólans Heklukots og Grunnskólans á Hellu héldu utan um viðburðinn.
Fleiri myndir frá viðburðinum eru á Facebooksíðu sveitarfélagsins.