Jólin voru kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði í kvöld þar sem mætingin var gríðarlega góð.
Farin var blysför frá Tryggvaskála að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt var í þrettándabálkesti. Björgunarfélag Árborgar sá svo um glæsilega flugeldasýningu af Fjallinu eina.
Jólasveinarnir voru að sjálfsögðu á svæðinu ásamt álfum og tröllum og kvöddu þeir krakkana á Selfossi áður en haldið var til fjalla.