Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur ákveðið að kæra ákvörðun Þjóðskrár um fasteignamat tilraunavindmyllna Landsvirkjunar á Hafinu við Búrfell.
Byggingarkostnaðurinn við hvora var um 200 milljónir en fasteignamatið hljóðar upp á 30 milljónir. Málið er talið fordæmisgefandi fyrir aðrar vindmyllur sem kunna að verða reistar á Íslandi.
„Málið er að vindmyllur eru ný mannvirki á Íslandi og það kostar eins og í þessu tilfelli 200 milljónir að setja upp svona myllu. Landsvirkjun metur það þannig að fasteignamatsvirðið sé 30 milljón krónur. Fasteignamatið tekur þann rökstuðning góðan og gildan, það gæti svo verið að það sé alveg eðlilegt. Við viljum einfaldlega láta reyna á það hvort að þetta sé rétt niðurstaða,“ segir Björgvin Skafti Bjarnason, oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, í Morgunblaðinu í dag.