Karl Hallgrímsson hefur verið ráðinn í stöðu aðstoðarskólastjóra við Bláskógaskóla í Reykholti.
Karl tekur við starfinu af Láru Bergljótu Jónsdóttur, sem var ráðin skólastjóri á dögunum.
Karl hefur starfað sem grunn- og tónlistarkennari frá 1997, þar af 12 ár í Reykholti.