Á haustmisseri 2023 varð Katharina S. Jóhannsdóttir frá Selfossi ein þeirra sem fékk þann heiður að vera valin á forsetalista Háskólans í Reykjavík.
Þeir nemendur sem komast á forsetalista eru 1-3% sem ná bestum námsárangri í námi á hverri önn og var Katharina ein á meðal þeirra. Markmiðið með forsetalista HR er hvatning fyrir nemendur sem ná framúrskarandi árangri í námi og til vekja athygli á árangri þeirra.
Þeir nemendur sem komast á forsetalista hljóta styrk sem nemur skólagjöldum einnar annar. Auk þess er mikill heiður að komast á slíkan lista og getur viðurkenningin til dæmis skipt máli þegar sótt er um framhaldsnám eða atvinnu.