Kirkjubæjarklaustur komið með háhraða 5G net

Kirkjubæjarklaustur. sunnlenska.is/Sigurður Hjálmarsson

Nova hefur sett upp 5G sendi á Kirkjubæjarklaustri og býður því bæjarbúum upp á áður óþekktan nethraða á svæðinu. Þar með bætist Kirkjubæjarklaustur í hóp þeirra 45 bæjarfélaga sem hafa aðgang að 5G, en Nova hefur undanfarin ár komið upp yfir 90 sendum í öllum landshlutum.

Innleiðing 5G á Kirkjubæjarklaustri hefur í för með sér umtalsvert meiri afköst og hraðara streymi fyrir einstaklinga og fyrirtæki á svæðinu, en 5G skilar að jafnaði 150-200 Mb/s hraða á sekúndu og fer reglulega upp fyrir 1.000 Mb/s.

„Þetta þýðir að þeir íbúar Kirkjubæjarklausturs sem eru með tæki sem styðja 5G, eru með eina hröðustu nettengingu sem möguleiki er á í dag, hvort sem er hér heima eða annarsstaðar í heiminum. Með þessu tryggjum við mjög hratt streymi, styttri svartíma og niðurhal á ofsahraða en 5G hraði jafnast á við öflugustu ljósleiðaratengingar þar sem þú getur hlaðið niður allt að 2,3 GB á sekúndu og svartíminn er undir 10 millisekúndur. Við erum mjög ánægð með að geta boðið okkar viðskiptavinum á svæðinu upp sama hraða og tíðkast í æ fleiri bæjarfélögum, þar sem viðbrögðin við 5G innleiðingunni hafa verið hreint frábær,“ segir Benedikt Ragnarsson, framkvæmdastjóri fjarskipta Nova.

Fyrri greinByggðasafnið óskar eftir jólaskrauti
Næsta greinGrímsnes- og Grafningshreppur sveitarfélag ársins 2022