Fyrr í marsmánuði komu dætur og tengdadóttir Steinunnar Guðnýjar Sveinsdóttur í heimsókn á hjúkrunar- og dvalarheimilið Kirkjuhvol á Hvolsvelli og færðu heimilinu súrefnissíu að gjöf.
Þegar gjöfin var afhent kom Unnsteinn Árnason, óperusöngvari, dóttursonur Steinunnar, og flutti nokkur lög sem gladdi íbúa og starfsfólk mjög.
Í tilkynningu frá Kirkjuhvoli segir að þessi veglega gjöf muni koma sér ákaflega vel fyrir Kirkjuhvol og eru þeim systrum Sigurveigu, Hildi, Guðlaugu, Hördísi, Jónu, Þórunni og mágkonu þeirra, Gróu, færðar góðar og kærar þakkir fyrir.