RÚV stendur fyrir kjördæmafundi í Suðurkjördæmi í beinni útsendingu í dag klukkan 18:10.
Fundurinn verður sendur út frá safnaðarheimili Grindavíkurkirkju en hann verður í beinu streymi á sunnlenska.is. Upptöku frá fundinum má sjá neðst í fréttinni.
Þar munu oddvitar framboðslistanna í Suðurkjördæmi sitja fyrir svörum en umsjón með þættinum hafa Anna Kristín Jónsdóttir og Freyr Gígja Gunnarsson.
Gestir kvöldsins eru Halla Hrund Logadóttir Framsóknarflokki, Guðbrandur Einarsson Viðreisn, Guðrún Hafsteinsdóttir Sjálfstæðisflokki, Ásthildur Lóa Þórsdóttir Flokki fólksins, Unnur Rán Reynisdóttir Sósíalistaflokknum, Elvar Eyvindsson Lýðræðisflokknum, Karl Gauti Hjaltason Miðflokki, Týr Þórarinsson Pírötum, Víðir Reynisson Samfylkingunni og Hólmfríður Árnadóttir Vinstri grænum.