Laugardaginn 1. júní verður kjörfundur vegna forsetakosninga í Sveitarfélaginu Árborg. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00
Kosið er á þremur kjörstöðum, BES – Grunnskólinn á Stokkseyri, Samkomuhúsið Staður, Eyrarbakki og Vallaskóli, Selfossi.
Athygli er vakin á því að sjö kjördeildir eru í sveitarfélaginu þar sem skipt er í kjördeildir eftir búsetu kjósenda.
Kjördeildir 1 – 5 eru staðsettar í Vallaskóla, Sólvöllum 2
- Kjördeild 1 er fyrir kjósendur við götur á Selfossi með götuheitum sem byrja á bókstöfunum A – Á og V – Þ. Einnig fyrir Íslendinga búsetta erlendis.
- Kjördeild 2 er fyrir kjósendur við götur á Selfossi með götuheitum sem byrja á bókstöfunum B – E, kjósendur við Fossveg og Háengi og kjósendur í húsum sem ekki hafa götuheiti á Selfossi.
- Kjördeild 3 er fyrir kjósendur við götur á Selfossi með götuheitum sem byrja á bókstöfunum F – J, en þó ekki kjósendur við Fossveg og Háengi.
- Kjördeild 4 er fyrir kjósendur við götur á Selfossi með götuheitum sem byrja á bókstöfunum K – R.
- Kjördeild 5 er fyrir kjósendur við götur á Selfossi með götuheitum sem byrja á bókstöfunum S – Ú og kjósendur sem eru með ótilgreint lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg.
Kjördeild 6 er staðsett í BES – Grunnskólanum á Stokkseyri, Stjörnusteinum 2, Stokkseyri
- Kjördeild 6 er fyrir kjósendur búsetta á Stokkseyri, í dreifbýli við Stokkseyri og kjósendur búsetta í póstnúmeri 801 utan Tjarnarbyggðar.
Kjördeild 7 er staðsett á Samkomuhúsinu Stað, Búðarstíg 7, Eyrarbakka
- Kjördeild 7 er fyrir kjósendur búsetta á Eyrarbakka, kjósendur í dreifbýli við Eyrarbakka og kjósendur búsetta í Tjarnarbyggð.