Konan sem lést við Dyrhólaey í gær hafði farið ásamt eiginmanni sínum, syni á þrítugs aldri og 14 ára dóttur niður í Kirkjufjöru austast á Dyrhólaey þegar stór alda kemur og fellir soninn og tekur hann með sér út.
Móðirin lenti einnig í briminu og fór út með soginu. Sonurinn komst af sjálfsdáðum í land og ásamt föður sínum og systur í öruggt skjól. Öll fjölskyldan mun með einum eða öðrum hætti hafa lent í briminu en mis mikið þó.
Eiginmaður konunnar og börn voru flutt með sjúkrabifreið á slysadeild í Reykjavík en voru útskrifuð í gærkvöldi og aðstoðaði lögregla þau við að komast í náttstað. Þau njóta aðstoðar sendirðáðs síns.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að við Dyrhólaey séu skilti á þremur tungumálum auk íslensku sem vara m.a. við hættu af sjógangi. Göngustígar eru víðast afmarkaðir með keðjum. Áfram er unnið að rannsókn málsins.