Haustvindarnir flytja með sér ýmiskonar flækingsfugla og fiðrildi og meðal þeirra er kóngasvarmi sem fannst við Menntaskólann að Laugarvatni í vikunni.
Kóngasvarminn gerði sig heimakominn undir bíl sögukennarans í vikunni. Þar var á ferðinni risavaxið fiðrildi sem var að þrotum komið, eflaust eftir langt flug frá meginlandi Evrópu. Lífleysi gestsins kom þó ekki í veg fyrir að hann vekti mikla athygli á kennarastofunni þar sem hann var myndaður og mældur. Frá þessu er sagt á heimasíðu menntaskólans.
Náttúrufræðikennarinn tók síðan að sér að koma fiðrildinu á viðkomandi stofnun og fékk um leið að vita að um svokallaðan kóngasvarma væri að ræða. Kóngasvarminn er mikill flugkappi, enda á stærð við lítinn fugl, og flækist hingað til lands stöku sinnum með veðri og vindum. Frekari upplýsingar um kóngasvarma er að finna hér.