Senn er á enda viðburðaríkt ár hjá Sunnlendingum. Sunnlenska fréttablaðið og sunnlenska.is standa nú fyrir kosningu á Sunnlendingi ársins 2011.
Margir Sunnlendingar unnu stór sem smá afrek á árinu sem vöktu athygli og aðdáun.
Tilnefningar skal senda á netfrett@sunnlenska.is og stendur kosningin til 23. desember. Gjarnan má fylgja stuttur rökstuðningur með tilnefningunni um hvað viðkomandi hefur lagt til samfélagsins á árinu.
Úrslitin verða birt í áramótablaði Sunnlenska og á sunnlenska.is á milli jóla og nýárs.