Kosning hafin á Sunnlendingi ársins 2016

Kosning er hafin á Sunnlendingi ársins 2016. Árið er senn á enda og á síðustu mánuðum hafa margir Sunnlendingar unnið stór og smá afrek sem vakið hafa athygli og aðdáun.

Í fyrra var það Björgvin Karl Guðmundsson, crossfit- og lyftingamaður frá Stokkseyri, sem sigraði í kosningunni en hann sló í gegn á heimsleikunum í crossfit sumarið 2015 og var þá þriðji hraustasti maður í heimi.

Kosningunni lýkur kl. 12 á hádegi, fimmtudaginn 29. desember en niðurstaða kosningarinnar verður tilkynnt í áramótaþætti Suðurland FM á gamlársdag.

KOSNINGUNNI ER LOKIÐ

Fyrri Sunnlendingar ársins:
2015 Björgvin Karl Guðmundsson, crossfit-kappi frá Stokkseyri Valinn af lesendum sunnlenska.is
2014 Dagný Brynjarsdóttir, knattspyrnukona á Hellu Valin af lesendum sunnlenska.is
2013 Siggeir Ingólfsson, Staðarhaldari á Eyrarbakka Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is
2012 Jóhanna Bríet Helgadóttir, móðir á Selfossi Valin af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is
2011 Olga Bjarnadóttir, fimleikaþjálfari og kennari á Selfossi Valin af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is
2010 Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is
2009 Hrönn Arnardóttir og Stefán Pétursson, sjúkraflutningamenn Valin af hlustendum Suðurland FM
2008 Jón Eiríksson, bóndi og fræðimaður í Vorsabæ Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins
2007 Ekki valinn
2006 Ekki valinn
2005 Gunnar Egilsson, Suðurpólfari á Selfossi Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sudurland.is

Fyrri greinÞyrla kölluð að Skálpanesi
Næsta greinSmyril Line Cargo hefur vikulegar siglingar milli Þorlákshafnar og Rotterdam