Kosning er hafin á Sunnlendingi ársins 2021. Þetta undarlega ár er nú loksins liðið og þrátt fyrir samfélagslega erfiðleika á síðustu mánuðum hafa margir Sunnlendingar unnið stór og smá afrek sem vakið hafa athygli og aðdáun.
Í fyrra var það starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem var kosið Sunnlendingar ársins fyrir ötult og óeigingjarnt starf í Kórónuveirufaraldrinum.
Kosningunni lýkur á þrettándanum, kl. 22:00.
KOSNINGUNNI ER LOKIÐ – TAKK FYRIR AÐ TAKA ÞÁTT
Fyrri Sunnlendingar ársins:
2020 Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands Valið af lesendum sunnlenska.is
2019 Karlalið Selfoss í handbolta Valdir af lesendum sunnlenska.is
2018 Liðsmenn Brunavarna Árnessýslu Valdir af lesendum sunnlenska.is
2017 Sigríður Sæland, íþróttakennari á Selfossi Valin af lesendum sunnlenska.is
2016 Jón Daði Böðvarsson, knattspyrnumaður frá Selfossi Valinn af lesendum sunnlenska.is
2015 Björgvin Karl Guðmundsson, crossfit-kappi frá Stokkseyri Valinn af lesendum sunnlenska.is
2014 Dagný Brynjarsdóttir, knattspyrnukona á Hellu Valin af lesendum sunnlenska.is
2013 Siggeir Ingólfsson, Staðarhaldari á Eyrarbakka Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is
2012 Jóhanna Bríet Helgadóttir, móðir á Selfossi Valin af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is
2011 Olga Bjarnadóttir, fimleikaþjálfari og kennari á Selfossi Valin af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is
2010 Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sunnlenska.is
2009 Hrönn Arnardóttir og Stefán Pétursson, sjúkraflutningamenn Valin af hlustendum Suðurland FM
2008 Jón Eiríksson, bóndi og fræðimaður í Vorsabæ Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins
2007 Ekki valið
2006 Hannes Kristmundsson í Hveragerði, reisti minningarkrossa við Kögunarhól Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sudurland.is
2005 Gunnar Egilsson, Suðurpólfari á Selfossi Valinn af lesendum Sunnlenska fréttablaðsins og sudurland.is