Köttur olli rafmagnsleysi í Þorlákshöfn í gærkvöldi. Rafmagn fór af öllum bænum í klukkustund klukkan 21:42.
mbl.is greinir frá þessu.
Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir köttinn hafa komist í spenninn með þeim afleiðingum að rafmagn sló út. „Hann hefur komist inn og komið við eitthvað sem varð þess valdandi að rafmagni sló út. Því miður lifði hann þetta ekki af,“ segir Steinunn en kveður engar skemmdir hafa orðið á kerfinu við rafmagnsleysið.