Sigurður Böðvarsson, sérfræðingur í krabbameinslækningum, hefur verið ráðinn yfirlæknir göngudeildar á sjúkrahússviði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Hann hóf störf þann 1. desember síðastliðinn.
Sigurður er nú nýfluttur til landsins eftir að hafa starfað í Bandaríkjunum undanfarin átta ár. Þar starfaði hann sem sérfræðingur í krabbameinslækningum við Gundersen Health System í La Crosse í Wisconsin-fylki og nú síðast við Green Bay Oncology í Green Bay í Wisconsin-fylki. Áður starfaði Sigurður um níu ára skeið sem sérfræðingur í krabbameinslækningum við Landspítala.
Hann hefur áralanga reynslu af meðferð krabbameinssjúklinga, rannsóknum, kennslu og stjórnun, var um tíma formaður Læknafélags Reykjavíkur og sat í stjórn Læknafélags Íslands. Hann lauk meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu frá Háskólanum á Bifröst árið 2009.
Að sögn Herdísar Gunnarsdóttur, forstjóra HSU, er mikill fengur fyrir stofnunina að fá Sigurð til starfa. Sjúklingum sem þurfa lyfjameðferð vegna krabbameins- og blóðsjúkdóma, er boðið í samvinnu við Landspítala að þiggja þjónustu á HSU, eins og kostur er. Sigurður mun einnig veita öðrum langveikum sjúklingum meðferð, ráðgjöf og þjónustu.