Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur lagt fyrir Héraðsdóm Suðurlands kröfu um gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn var í Vík í Mýrdal í gær grunaður um vinnumansal.
Búist er við afstöðu dómara til kröfunnar síðar í dag.
Rannsóknardeild og ákærusvið lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar mansalsteymis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.