Kristján Björnsson, sóknarprestur í Eyrarbakkaprestakalli, hefur verið kjörinn til embættis vígslubiskups í Skálholtsumdæmis. Kosið var á milli hans og Eiríks Jóhannssonar.
Á kjörskrá voru 939 manns og var kosningaþátttaka var um 73% en alls greiddu 682 atkvæði. Þar af voru sjö seðlar auðir og þrír ógildir.
Séra Eiríkur hlaut 301 atkvæði, eða 44% og séra Kristján hlaut 371 atkvæði eða 54%.