Halló Helluvað verður í dag kl. 13:30 að Helluvaði í Rangárþingi Ytra. Þar verður kúnum hleypt út í sumarið með tilheyrandi fjöri.
Fjárhúsið verður opið og þar gefst gestunum færi á að skoða og knúsa lömbin.
Allir eru hjartanlega velkomnir, líka þeir sem vilja bara sýna sig og sjá aðra og verður boðið uppá kaffi, kleinur og ábresti með kanil.