Kvenfélög gefa til HSU í Rangárþingi

Kvenfélagskonur úr Lóu gáfu ungbarnaborð til heilsugæslunnar. Ljósmynd/HSU

Á dögunum komu konur frá Kvenfélaginu Lóu á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Rangárþingi. Meðferðis höfðu þær ungbarnaborð fyrir ungbarnavernd, sem notað er í mælingar og vigtun ungbarna.

Þessi gjöf frá Lóu til heilsugæslunnar er að verðmæti 150 þúsund krónur.

Nú í nóvember fékk svo heilsugæslan í Rangárþingi aðra heimsókn, að þessu sinni konur frá Kvenfélaginu Unni.  Þær gáfu heilsugæslunni CRP tæki að andvirði 100 þúsund krónur.

Kvenfélög hafa ávallt verið tryggur bakhjarl HSU gegnum tíðina og fært stofnunni gjafir sem alltaf eru kærkomin viðbót í starfsemina og koma sér einstaklega vel og bæta þjónustuna.

Fyrri greinÞjóðvegi 1 lokað í kvöld
Næsta greinSpenna á Nesinu