Kvenfélögin í Uppsveitum Árnessýslu; Kvenfélag Biskupstungna, Gnúpverja, Grímsneshrepps, Hrunamannahrepps, Laugdæla og Skeiðahrepps hafa miklar áhyggjur af stöðu heilsugæslumála á svæðinu.
Þetta kemur fram í áskorun sem félögin sendu frá sér í dag en fyrirsjáanleg er skerðing á læknisþjónustu í Uppsveitum m.a. vegna uppsagna á bakvöktum lækna á heilsugæslunni í Laugarási.
Í áskoruninni kemur fram að kvenfélögin hafa verið öflugir bakhjarlar HSU og heilsugæslunnar um áratuga skeið og hafa ætíð stutt við þessar stofnanir með fjármagni til tækjakaupa og fleira.
Kvenfélögin öll sem eitt skora á stjórn HSU, allar sveitarstjórnir í Uppsveitum Árnessýslu, Landlæknisembættið, Heilbrigðisráðuneytið og heilbrigðisráðherra auk innviðaráðherra að þau taki öll höndum saman og vinni hratt og vel að öryggi íbúa, sumarhúsaeigenda og ferðamanna með því að:
- Tryggja og verja stöðu heilsugæslunnar í Uppsveitum.
- Fastráða lækna og tryggja bakvaktir þeirra.
- Tryggja fasta viðveru sjúkrabíla og bráðaliða allt árið um kring.
- Fylgja Heilbrigðisstefnu til ársins 2030 þar sem m.a. kemur fram: „Til að tryggja að heilbrigðisþjónustan sé í samræmi við þarfir og væntingar notenda þarf að kanna reynslu og viðhorf notenda reglubundið með þjónustukönnunum.”
Undir áskorunina rita formenn kvenfélaganna sex en áskorunin var send á yfirstjórn HSU, fulltrúa allra sveitarstjórna í Uppsveitum Árnessýslu, sveitarstjóra, oddvita, Landlæknisembættið, heilbrigðisráðherra og Heilbrigðisráðuneyti, innviðaráðherra, fjölmiðla og þingmenn Suðurlands.