Sveitarfélagið Árborg hefur boðað til opins íbúafundar í Sigtúnsgarði á Selfossi fimmtudaginn 24. ágúst næstkomandi kl. 18:00 þar sem tillaga að skipulagi miðbæjar verður kynnt og farið sérstaklega yfir stærð og afmörkun Sigtúnsgarðs.
Að fundinum loknum mun Sigtún Þróunarfélag kynna hugmyndir sínar um uppbyggingu og starfsemi á miðbæjarsvæðinu og bjóða upp á grillaðar pylsur og svaladrykki.