Kýrnar fara inn að éta

Það væsir ekki um kýrnar í hátæknifjósinu á Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi þar sem þær gæða sér á nýgresi. Ábúendur eru hjónin Arnfríður Jóhannsdóttir og Jón Viðar Finnsson.

„Við fóðrum þær inni og þær fara bara út á tún til að viðra sig. Bærinn er í hálfgerðu þéttbýli svo túnin eru ekki alveg við húsin,“ segir Jón Viðar. Við Morgunblaðið í dag segir hann fóðurnýtinguna mun betri á þennan veg.

Jón kvartar þó undan þurrkum sem hafi slæm áhrif á grasvöxtinn. „Grasið ætti að vera svona 10 til 15 sentimetrum hærra.“

Fyrri greinÞyrla sótti mann í Hrafntinnusker
Næsta greinUnnið að rannsókn brunans