Sveitarfélagið Árborg hefur boðað landeigendur í Flóanum til fundar þriðjudaginn 8. janúar. Þangað eru boðaðir þeir sem eiga jarðir á áhrifssvæði hugsanlegs flugvallar í Flóanum, þar sem heitir Stokkseyrarmýri og Brautartunga.
Á fundinum verða kynnt áform um að hefja rannsóknir á kostum og göllum staðsetningar alþjóðaflugvallar á þessum stað.
Að sögn Gísla H. Halldórssonar, bæjarstjóra, er til skoðunar að sveitarfélagið samþykki viljayfirlýsingu um að slíkar rannsóknir fari fram.
„Áður en tillaga um viljayfirlýsingu verður lögð fyrir bæjarstjórn er nauðsynlegt að fá fram sjónarmið landeigenda, bæði afstöðu til staðsetningarinnar og einnig upplýsingar sem þeir gætu komið á framfæri og varða framkvæmd rannsókna. Landeigendur sem telja sig á áhrifssvæði en hafa ekki fengið fundarboð geta haft samband og fengið frekari upplýsingar,“ segir Gísli.