Landgræðslan fékk umhverfisverðlaun Ölfuss

Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra afhenti Landgræðslunni umhverfisverðlaun Ölfuss á sumardaginn fyrsta við hátíðlega athöfn í Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi.

Þetta var í sjötta sinn sem Sveitarfélagið Ölfus veitir þessi verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í umhverfsmálum. Forsætisráðherra rakti sögu sandgræðslu við Þorlákshöfn og sagði að samfélagið í Þorlákshöfn ætti landgræðslustarfi tilvist sína að þakka.

Sigurður Ingi sagði að í upphafi landgræðslustarfs í Þorlákshöfn hefðu aðeins tvær fjölskyldur búið á staðnum en nú væri þar mikil útgerð, fiskvinnsla og blómlegt mannlíf með á annað þúsund íbúa. Ráðherra gat um að ávallt hefði verið frábært og umfangsmikið samstarf á milli Landgræðslunnar og sveitarfélagsins um uppgræðsluframkvæmdir. Verðlaunagripinn gerði Dagný Magnúsdóttir.

Fyrri greinRagnheiður Björk íþróttamaður ársins
Næsta greinKFR sigraði í markaleik