Landsvirkjun hyggst funda með sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps um framtíð Norðlingaölduveitu.
Málefni veitunnar og friðlands í Þjórsárverum tóku nýja stefnu í síðustu viku með ákvörðun stjórnvalda um stækkun friðlandsins sem mögulega gæti breytt fyrri áformum um vatnsöflun fyrir virkjanir Landsvirkunar neðar í Þjórsá.
Jón Vilmundarson í Skeiðháholti, hreppsnefndarmaður í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hefur átt sæti í sérstakri ráðgjafanefnd um friðun Þjórsárvera. Hann segir nefndina hafa unnið gagnmerkt starf hvað varðar útfærslu á stækkun friðlands og skilmálum þess. Það sé nokkuð sérstakt að fá ekki að klára þá vinnu í ljósi þess að nokkuð góð sátt væri að myndast um það í hverju friðlýsing ætti að felast.
Undir það tekur Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Suðurkjördæmis, sem gagnrýnir stjórnvöld einnig fyrir einstefnu í málinu og verið sé að ganga framhjá Alþingi í því efni. „Það er ólýðræðislegt að taka málið frá löggjafarvaldinu,“ segir Sigurður Ingi.
Tilgangurinn með Norðlingaölduveitu er að stífla Þjórsá talsvert neðan við Þjórsárver og mynda með því um fimm ferkílómetra lón. Til samanburðar er Apavatn um 13 ferkílómetrar að stærð. Frá lóninu yrðu grafin aðrennslisgöng til Þórisvatns (86km2) í þeim tilgangi að auka rafmagnsframleiðslu úr virkjunum við Vatnsfell, Sigöldu, Hrauneyjafoss og Búðarháls.