Landsvirkjun hefur ákveðið að stækka Búrfellsvirkjun um 100 MW og er áætlað að framkvæmdir hefjist á vormánuðum. Stækkunin mun nýta vatn sem í dag rennur framhjá núverandi stöð.
Framhjárennslið er aðallega yfir sumarmánuðina og mun stækkunin því aðeins framleiða orku hluta ársins. Uppsett afl hennar mun hins vegar nýtast allt árið um kring til að auka rekstraröryggi og sveigjanleika raforkukerfisins.
Óskað verður eftir tilboðum í vél- og rafbúnað vegna stækkunarinnar á næstu dögum. Efnt var til forvals meðal hugsanlegra bjóðenda og þeim bjóðendum sem uppfylltu skilyrði forvalsins verður gefinn kostur á þátttöku í útboðinu. Gert er ráð fyrir að tilboð verði opnuð í byrjun desember nk. og að gengið verði til samninga í byrjun árs 2016. Byggingarvinna tengd stækkuninni verður boðin út í nóvember næstkomandi.
Um 14% af rennslisorku við Búrfellsstöð, eða sem nemur um 410 GWst, renna að jafnaði ónýtt fram hjá stöðinni á hverju ári. Stækkuð Búrfellsvirkjun mun bæta nýtingu á því rennsli. Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að það sé í samræmi við hlutverk fyrirtækisins að hámarka afrakstur af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi.
Í mati Skipulagsstofnunar segir að stækkun virkjunarinnar um allt að 140 MW sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Lögð er áhersla á að mannvirki verði sem minnst áberandi. Mest áberandi mannvirkin verða aðrennslisskurður, frárennslisskurður og inntaksmannvirki virkjunarinnar. Stöðvarhúsið verður staðsett neðanjarðar í Sámsstaðaklifi.
Landsvirkjun mun tryggja aðgengi að útivistarsvæðum í nágrenni Búrfellsstöðvar. Enn fremur er ætlunin að skoða möguleika á að tengja þau svæði við upplýsingamiðstöðvar í Þjórsárdal.
Gert er ráð fyrir að síðar verði hægt að stækka stöðina um allt að 40 MW.
Áætlað er að hefja framkvæmdir á fyrirhuguðu virkjunarsvæði vorið 2016 og að þær standi yfir til miðs árs 2018. Á síðari hluta ársins 2016 má gera ráð fyrir um 100 starfsmönnum á virkjunarsvæðinu. Allt árið 2017 og fyrri hluta árs 2018 er gert ráð fyrir allt að 150 starfsmönnum á svæðinu.
Áætlaður heildarkostnaður er 13-15 milljarðar íslenskra króna.
Ráðgert er að gangsetja stækkunina í aprílmánuði 2018.