Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur samþykkt að ráða Láru Bergljótu Jónsdóttur í stöðu skólastjóra Bláskógaskóla Reykholti frá 1. ágúst næstkomandi.
Lára Bergljót hefur gegnt stöðu aðstoðarskólastjóra Bláskógaskóla Reykholti frá árinu 2017 og starfað sem grunnskólakennari í 18 ár þar á undan.
Þrjár umsóknir bárust um skólastjórastöðuna.