Líklegast er að stóraukna leiðni í Múlakvísl í nótt megi rekja til sömu jarðhitasvæða undir Mýrdalsjökli og flóðið kom úr fyrir tveimur vikum.
Bæði hefur dregið úr rennsli og leiðni árinnar í morgun. Leiðnin hækkaði mjög mikið í gærkvöldi og fram eftir nóttu og vatnsrennslið líka þótt ekki yrði aftakaflóð. Gunnar Sigurðsson vatnamælingamaður hjá Veðurstofunni segir ljóst að mikið rennsli hafi verið í ánni frá því í gærkvöldi.
„Það eru allar líkur á að þetta sé að koma af sömu jarðhitasvæðunum og flóðið fyrir tveimur vikum,“ sagði Gunnar.
Í gærkvöldi og nótt jókst leiðni í Múlakvísl. Rétt fyrir miðnætti varð vart við óróa í Mýrdalsjökli um leið og leiðni óx hraðar en áður. Í öryggisskyni var ákveðið að loka þjóðveginum um Mýrdalssand meðan ástandið var kannað. Upp úr klukkan 1:00 var talið óhætt að opna veginn aftur.
Mbl.is greindi frá þessu