Leikskólinn Örk á Hvlsvelli opnaði aftur eftir sumarfrí síðastliðinn mánudag. Börn og starfsfólk virðist endurnært eftir afslöppunina og það ríkir mikil gleði meðal manna.
Nemendur deildarinnar Tónalands tóku sig til í dag og máluðu heyrúllur sem staðsettar eru á bak við Frumherjahúsið. Krökkunum fannst þær heldur „venjulegar“ og því var ákveðið að skreyta þær örlítið. Afraksturinn var glæsilegur og óneitanlega er glaðlegra yfirbragð yfir túninu núna.
Fólk er hvatt til að fá sér göngutúr eða bíltúr og skoða þessi óvanalegu listaverk.