Viðbragðsaðilar voru kallaðar út á sjötta tímanum í dag til leitar að 11 ára barni sem fór frá heimili sínu á Selfossi fyrr í dag.
Björgunarsveitir í Árnessýslu, sjúkraflutningar, slökkvilið og lögregla voru kölluð út vegna þessa og meðal annars var leitað með bátum á Ölfusá.
Barnið fannst rúmum 30 mínútum frá því útkallið barst, skammt frá heimili sínu og hlaut málið því með farsælan endi.