Laust eftir klukkan þrjú í nótt fékk lögreglan á Suðurlandi tilkynningu um að maður hefði farið fram af Ölfusárbrú hafnað í ánni.
Ræstar voru út björgunarsveitir á Suðurlandi og af höfuðborgarsvæðinu, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, hópar þessir eru enn við leit á svæðinu.
Aðstæður til leitar eru frekar erfiðar þar sem mikið vatn er í ánni og mjög hvasst er á svæðinu.