Sveitarfélagið Árborg hefur ákveðið að setja af stað nafnasamkeppni fyrir göngu- og hjólreiðastíginn milli Eyrarbakka og Stokkseyrar.
Um er að ræða nýja stíginn sem liggur meðfram ströndinni og tengir þorpin saman. Vilji er til þess að finna í samvinnu við íbúa þjált og gott nafn fyrir stíginn.
Íþrótta- og menningarnefnd Árborgar mun fara yfir tillögur og í október verður nafnið kynnt við hátíðlega athöfn. Dagsetning verður auglýst síðar. Allir hafa rétt til þátttöku í nafnasamkeppni þessari.
Tillögur er hægt að senda á netfangið bragi@arborg.is eða koma með í í þjónustuver Ráðhúss Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfoss merkt: „Nafn á göngu- og hjólreiðastíginn milli Eyrarbakka og Stokkseyrar“.
Skilafrestur á tillögum er til fimmtudagsins 29. september 2016.