Leitað að ungri stúlku í nótt

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til leitar að ungri stúlku. Hafði stúlkan ætlað að ganga um 400 metra leið til foreldra sinna þar sem þau voru á tjaldsvæði en skilaði sér ekki á tilskyldum tíma.

Stúlkan kom fram í morgunsárið heil á húfi og var leit þá afturkölluð.

Verslunarmannahelgin hefur annars verið að mestu róleg hjá björgunarsveitum. Lang flest verkefnin hafa verið hjá björgunarsveitum í sjúkragæslu á útihátíðum og hjá Hálendisvaktinni. Hálendisvakt björgunarsveita er staðsett á þremur stöðum á hálendinu, í Dreka norðan Vatnajökuls, að Fjallabaki og á Sprengisandi.

Verkefni Hálendisvaktarinnar hafa að mestu falist föstum bílum í ám, minniháttar umferðaróhöppum á hálendinu og öðrum minni viðvikum.

Fyrri greinEyrarbakkavegur lokaður vegna alvarlegs slyss
Næsta greinEva María setti nýtt Íslandsmet í hástökki