Lögreglan á Suðurlandi leitar nú að Julian Carl Kristóferssyni, sem fæddur er árið 2003.
Síðast er vitað af ferðum Julian í gærkvöldi þann 30. júlí um kl.23:00 á Ingólfstorgi. Julian er búsettur í Hveragerði.
Julian var klæddur í grásvartar gallabuxur og svarta stóra dúnúlpu og er líklega í Converse skóm. Julian er grannvaxinn með brúnt axlarsítt liðað hár sem hann hefur yfirleitt í teygju.
Ef einhver hefur upplýsingar um ferðir hans, er hann beðinn um að hringja í síma 444 2000 á milli 8:00 og 16:00 eða í Neyðarlínuna, 112.
UPPFÆRT KL. 23:58: Julian Carl er fundinn heill á húfi. Lögreglan vill þakka öllum sem deildu tilkynningu hennar.