Lögreglan á Suðurlandi leitar að Illes Benedek Incze en hann sást síðast í Vík í Mýrdal klukkan 3:00 síðastliðna nótt.
Ef einhver hefur upplýsingar um ferðir hans eftir þann tíma endilega hafið samband 112.
Björgunarsveitir af nánast öllu Suðurlandi hafa verið kallaðar út til leitar sem og sporhundar af höfuðborgarsvæðinu. Útkallið barst björgunarsveitunum upp úr klukkan sex í kvöld að beiðni lögreglu.