Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir að ná sambandi við ökumann bifreiðar sem lenti í því óhappi að aka utan í barn á umferðarljósum við gatnamót Tryggvagötu og Engjavegar á Selfossi á milli kl. 8 og 9 í morgun.
Lögreglan vill taka það fram að ökumaður stöðvaði bifreiðina og athugaði með barnið, en það láðist að fá upplýsingar um ökumann.
Viðkomandi er beðinn um að hafa samband við lögreglu á netfangið sudurland@logreglan.is eða með því að hringja í síma 444-2000 á milli 09:00 og 15:00.