Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa auglýst eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands árið 2018.
Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa allir þeir sem tengjast skóla- og menntunarstarfi með einhverjum hætti; sveitarfélög, skólanefndir, foreldrar, kennarar og starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf.
Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur og eiga þær að hafa borist á skrifstofu SASS eigi síðar en 31. desember næstkomandi en tilnefningar má einnig senda á netfangið menntaverdlaun@sudurland.is.
Verðlaunin verða veitt í ellefta sinn nú í vetur. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög o.fl.
Veitt verða peningaverðlaun sem nýtt verði til áframhaldandi menntunarstarfs. Jafnframt fylgir verðlaununum formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands í janúar nk.