Lögreglan á Suðurlandi auglýsir eftir mögulegum vitnum að líkamsárás sem átti sér stað fyrir utan Lyfju á Selfossi um kl. 13:00 í dag, sunnudag.
Þar er karlmaður á fertugsaldri talinn hafa orðið fyrir árás annars manns sem sagður er hafa slegið þolandann með einhverju áhaldi í höfuðið með þeim afleiðingum að hann er kinnbeinsbrotinn. Meintur gerandi er talinn hafa farið á brott í bifreið strax eftir atvikið.
Þetta kemur fram í áríðandi tilkynningu sem lögreglan birti á Facebooksíðu sinni rétt í þessu.
Þeir sem hafa upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hringja í 112 og biðja um samband við varðstjóra á Selfossi eða senda tölvupósti á 1309@tmd.is.
UPPFÆRT KL. 19:03