Leitað með kafbátum í Þingvallavatni

Mynd úr safni. Ljósmynd/Björgunarfélag Árborgar

Björgunarsveitarmenn leituðu í gær að belgíska ferðamanninum sem saknað er á Þingvallavatni. Notast var við fjarstýrðan kafbát með myndavél.

Kafbáturinn var settur út á völdum stöðum þar sem dýpi er á bilinu 30 til 50 metrar og fengust nokkuð góðar myndir af þeim svæðum en sjónsvið bátsins er um 40 metrar. Leit var hætt upp úr kl. 20:00 í gærkvöldi án árangurs.

Svæðisstjórn og lögregla mun funda á miðvikudagsmorgun, annarsvegar til að fara yfir þær aðgerðir sem þegar hefur verið farið í og hinsvegar skipuleggja leit með öðrum kafbáti sem stefnt er að því að nota á fimmtudaginn.

Fyrri greinFjórar krónur af eldsneytislítranum til Landgræðslunnar
Næsta greinLokað í Reynisfjöru eftir grjóthrun