Lélegt GSM samband veldur óánægju

Hvolsvöllur. Ljósmynd/Mats Wibe Lund

Á byggðaráðsfundi Rangárþings eystra sem haldinn var í gær var rætt um GSM dreifikerfi í sveitarfélaginu sem hefur valdið óánægju margra íbúa.

Byggðaráð Rangárþings eystra hvetur til þess að GSM dreifikerfi símafyrirtækja verði eflt þannig að samband sé tryggt hvar sem er í byggð.

Ályktunin, sem var samþykkt samhljóða, er á þennan veg:

Í Rangárþingi eystra er vaxandi fjöldi ferðamanna og fyrir hendi er náttúruvá eins og alkunna er. Víða í sveitarfélaginu er GSM samband það lélegt að símtöl slitna iðulega, eða ekkert samband næst á ákveðnum svæðum. Þetta er bagalegt nú á tímum, þegar farsíminn er jafn mikið notaður og raun ber vitni og er mikilvægt öryggistæki. GSM samband telst einnig til búsetuskilyrða nú til dags.

Fyrri greinJafntefli gegn toppliðinu
Næsta greinMargir með þungan bensínfót