Bæjarráð Hveragerðis samþykkti á fundi sínum í morgun að breyta opnunartíma gámasvæðis til loka september þannig að opið verði til kl. 19:00 á þriðjudögum og fimmtudögum en lokað á mánudögum.
Opnunartíminn verður að öðru leyti óbreyttur. Lengdur opnunartími hefst þriðjudaginn 20. júní nk. og mun reynslan svo leiða í ljós hvort framhald verði á.
Opnunartími á gámasvæðinu verður því sem hér segir:
Þriðjudagar og fimmtudagar – frá kl. 16:00 til 19:00.
Miðvikudagar og föstudagar – frá kl. 16:00 til 18:00.
Laugardagar – frá kl. 12:00 til kl. 16:00.
Sunnudagar og mánudagar – Lokað