Betur fór en á horfðist þegar þriggja ára stúlka lenti undir heybagga á sveitabæ í Hrunamannahreppi síðdegis í gær.
Hún var flutt með þyrlu á Landspítalann seinnipartinn í gær en að sögn lögreglunnar á Suðurlandi virðist hún vera í góðu lagi og áverkalaus eftir að hafa gengist undir rannsóknir.
Plastklæddur stórbaggi, um 300 kíló að þyngd, lenti á stúlkunni og missti hún við það meðvitund. Hún hafði verið að leika sér með öðrum krökkum innan um bagga þegar slysið varð.
Stúlkan komst fljótlega til meðvitundar en til öryggis var ákveðið að senda hana með þyrlu á Landspítalann.