Maðurinn sem lést í árekstri jeppabifreiðar og dráttarvélar á Skeiðavegi sl. mánudag hét Ellert Þór Benediktsson til heimilis að Laufskálum 9 á Hellu
Ellert var fæddur þann 30. mars 1967. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvo syni, 17 og 20 ára.
Ellert starfaði sem dýralæknir á Dýralæknamiðstöðinni á Hellu.